Það er föstudagskvöld og þú hefur enn einu sinni samþykkt að halda matarboð. Þetta gerirðu þrátt fyrir að vera uppgefin eftir viku þar sem þú hefur hlaupið í skarðið fyrir vinnufélaga, hjálpað systur þinni að flytja og skipulagt fjáröflun í hverfinu. Þú stendur í eldhúsinu, ert að reikna út hvernig þú getur komið til móts við matarvenjur allra og veltir fyrir þér hvenær þú finnur tíma til að þrífa húsið. Þá kemur þessi kunnuglega hugsun: „Af hverju samþykkti ég þetta allt saman?“
Sem ESFJ persónuleikagerð (Ræðismaður) er það þér líkt að setja þarfir annarra framar þínum eigin – einnig þekkt sem þóknun við aðra.
Þessi eðlislægi hvöt til að hlúa að öðrum, styðja og vera hluti af samfélagi gerir það að verkum að allir treysta á þig. En það er ákveðin skuggahlið á þessu mynstri að halda alltaf með öllum. Að setja alltaf þarfir annarra ofar þínum getur leitt af sér kulnun, þögla gremju og tilfinningu um að vera ekki í tengslum við hver þú raunverulega ert.
Góðu fréttirnar? Með því að skilja hvers vegna þú fellur gjarnan í þann farveg að þóknast öðrum og læra að setja heilbrigð mörk getur þú áfram upplifað ánægju af því að gefa af þér – án þess að fórna eigin vellíðan. Það er það sem við ætlum að kanna í þessari grein.
Vegferð ESFJ að því að þóknast öðrum
Í grunninn snýst hegðun sem snýr að því að þóknast öðrum oft um grunnþörf mannsins fyrir tengsl og samþykki. Og sem ESFJ persónuleiki hefur þú sterka tilhneigingu til að vilja tengjast öðrum. Þú dafnar í félagslegum samskiptum og finnur ekta gleði í að sameina fólk.
Þessi löngun eftir reglulegum tengslum endurspeglast eflaust þannig að þú samþykkir flest boð sem þú færð og bjargar málum fyrir aðra að beiðni þeirra. Þú segir já við að kaffihitta vinnufélaga þótt þú sért yfirhlaðin verkefnum, samþykkir að mæta í hvert einasta boð þó þú sért örþreytt eða tekur að þér viðbótarverkefni því þú veist að einhver þarf að stíga fram. Þessi félagslyndi gerir þig oft að líminu sem heldur hópum saman, en getur líka leitt að vegi þar sem þú tekur á þig of mikið og byrjar að þóknast öðrum.
En þessi tilhneiging til að þóknast öðrum kemur ekki eingöngu frá félagslyndi þínu. ESFJ persónuleikar búa yfir ótrúlegri næmni á tilfinningalegt ástand í hvaða rými sem þeir ganga inn í. Þú tekur eflaust eftir örlitlum breytingum í skapi fólks, greinir þarfir áður en þær eru sagðar eða finnur skyldu til að tryggja að öllum í kringum þig líði vel og sé vel sinnt. Þessi næmni getur bæði verið dýrmæt gjöf og uppspretta streitu, því hún getur valdið því að þú setur eigin þarfir á bið til að aðrir haldi áfram að líða vel.
Í raun segja 83% ESFJ samkvæmt könnun okkar um „að þóknast öðrum“ að þeir setji oft þarfir annarra ofar sínum eigin – sem er þriðji hæsti hlutinn meðal allra persónuleikagerða.
En þessi tölfræði segir aðeins hluta sögunnar.
Það sem gerir ESFJ sérstaka er ekki bara viljinn til að setja aðra í fyrsta sæti, heldur líka þessi sérstaka skuldbinding við að klára það sem þeir hafa lofað. Ef þú segir að þú sjáir um að skipuleggja afmæli eða veita tilfinningalegan stuðning á erfiðum tímum, þá gerir þú það sem þarf – sama hvað. Þessi helgun er aðdáunarverð, en hún getur líka fest þig í skuldbindingum sem tæta í þig – sérstaklega ef þú hefur Órólega persónueiginleika.
Þótt allir ESFJ vilji styðja aðra, þá hafa Órólegir ESFJ (ESFJ-T) oft dýpri þörf fyrir viðurkenningu og samþykki. Þeir spyrja sig sífellt hvort þeir geri nóg, hvort fólkið sé sátt við aðstoðina eða hvort þeir standi undir væntingum annarra. Þessi sjálfsefi getur skapað vítahring þar sem þeir taka stöðugt á sig meira og meira, í von um að hvert aukalegt já tryggi þakklæti og samþykki sem þeir þrá.
Þessi grein um ESFJ og það að þóknast öðrum er hluti af stærra verkefni. Fáðu stærri yfirsýn í greininni okkar „Að þóknast öðrum og persónuleiki: af hverju setjum við þarfir annarra í fyrsta sæti.“
Hvernig á að byrja að setja eigin þarfir í forgang
Að vera alltaf til staðar fyrir aðra kann að virðast rétt, en stöðugt að þóknast öðrum hefur falinn hættumerki. Fyrir utan hættu á kulnun getur það skaðað sambönd ef þú byrjar að þróa með þér gremju gagnvart öðrum. Einnig getur það aukið kvíða í kringum stundir sem þú ættir að njóta og gert þig ómeðvitaðan um eigin langanir og þarfir.
Til að draga úr þessum vandamálum geta eftirfarandi aðferðir hjálpað þér að viðhalda þinni eðlislægu hjálpsemi og setja samt heilbrigð mörk sem leyfa þér meiri hvíld og tíma fyrir sjálfa(n) þig. Hugsaðu um þetta sem leið til að sinna þér af sömu alúð og þú sinnir öðrum.
Aðferð #1: Skiptu sjálfvirku já-inu út fyrir ígrunduð svör
Áður en þú tekur að þér nýja skuldbindingu, stoppaðu og mettu heiðarlega hvort þú hafir tíma og orku til að standa við það án þess að ganga á þig. Það getur þýtt að þú dregur að þér að segja já strax. Prófaðu frekar þessi svör:
- „Leyfðu mér að kíkja á dagatalið og athuga hvort ég geti gefið þessu þá athygli sem það á skilið.“
- „Ég þarf að skoða hvað ég hef tekið að mér þá viku áður en ég get staðfest.“
- „Má ég svara þér á morgun? Mig langar að vera viss um að ég hafi tíma og orku til að sinna þessu vel.“
Að segja já við öllu gerir þig ekki að betri vini eða stuðningsaðila – það gerir þig bara þreyttari. Þegar þú hættir að þóknast öllum og verndar orku þína með varkárri skipulagningu, þá geturðu vitað að öll þín já koma af stað þar sem þú hefur raunverulega burði til þess, ekki bara löngun til að þóknast.
Aðferð #2: Skiptu álaginu með öðrum
ESFJ persónuleikar eins og þú hafa meðfætt lag á að greina þarfir og halda utan um smáatriði. Afleiðingin getur verið sú að þú endir með að taka alla ábyrgðina sjálf(ur).
Þín hæfni til að „færa fjöll“ er virðingarverð, en ef þú tekur þig alltaf ein(n) að þessu, nærðu aldrei að fá hvíld – og rýfur jafnvel tækifæri annarra til þess að leggja sitt af mörkum á eigin forsendum.
Í staðinn fyrir að taka sjálfkrafa að þér stjórn á öllum verkefnum eða viðburðum, hvetdu frekar vini, fjölskyldu og samstarfsfólk til að bera ábyrgð með þér. Það getur verið með því að útbúa vaktaskiptingu fyrir hver hýsir viðburði, halda sameiginlega verkefnalista eða skipuleggja nefndir þar sem hver og einn hefur sitt hlutverk.
Þetta hjálpar ekki aðeins til við að koma í veg fyrir kulnun hjá þér sjálfri(o)m heldur ræktar líka oft betra og meira samstarf þar sem allir upplifa að þeirra framlag skipti máli.
Aðferð #3: Taktu frá tíma fyrir þínar eigin þarfir
Gefandi eðli þitt er sterkur hluti af persónuleika þínum, en jafnvel þeir sem mest hugsa um aðra þurfa tíma til að endurhlaða sig. Settu reglulega inn sjálfsumönnunar-daga í dagatalið þitt og gæt þeirra eins og annarra mikilvægra skuldbindinga. Svoleiðis fyrirframhólfið frítími gefur þér rými til að einblína á þínar eigin þarfir og vellíðan – án þess að hugsa um að hugsa um aðra.
Þegar þú byrjar að tileinka þér þessar aðferðir skaltu byrja smátt. Veldu kannski það sem þér finnst léttast að prófa og æfðu þig í því þar til það verður sjálfsagt. Þá geturðu kannski tekið aðra aðferð í viðbót.
Mundu að það tekur tíma að breyta mynstrum sem snúa að því að þóknast öðrum, en hvert lítið skref í átt að því að setja þig sjálfa(n) í forgang er framfarir sem vert er að fagna!
Lokaorð
Hvötin til að hjálpa öðrum gerir þig að ómetanlegri manneskju í lífi margra, en mundu að þú ert ekki aðeins aukapersóna í sögum annarra – þú ert Protagonisti í eigin lífi. Þegar þú lærir að finna jafnvægi á milli þess sem þú gefur öðrum og þess sem þú í raun vilt eða þarft, skrifar þú sögu þar sem allir, þar með talin(n) þú, dafna.
ESFJ persónuleikar, við viljum gjarnan heyra frá ykkur! Fellið þið oft í það að þóknast öðrum? Hvaða aðferðir hjálpa ykkur að forðast ofmiklar skuldbindingar? Deilið reynslu ykkar í athugasemdunum hér fyrir neðan.
Frekari lestur
- Lestu fleiri greinar í röðinni okkar um það hvernig mismunandi persónuleikagerðir geta yfirstigið hegðun sem snýr að því að þóknast öðrum.
- Hvernig á að segja nei (kurteislega): Persónuleiki og listin að setja mörk
- Ást og ósætti: Skilningur á nálgun ESFJ á átök í samböndum
- Gagnkvæmni, ást og persónuleiki í ESFJ rómantískum samböndum
- Ertu tilbúin(n) að læra meira? Nældu þér í Premium Report og uppgötvaðu 12 viðbótareiginleika sem hafa áhrif á ESFJ persónuleikann þinn. Fáðu skýrari mynd af sjálfri(o)m þér og hvernig þú færð að vera þessi ómetanlegi stuðningsaðili – án þess að ganga á eigið orkustig.